Hvađ er ađ?????
http://www.mbl.is/mm/frettir/erlent/2008/04/27/lokadi_dottur_sina_inni_i_24_ar/
Hvað á að gera við svona menn?
Smá update
- Verknámið byrjað...... er á sjúkrahúsinu í Keflavík á D-deild (Gegt gaman).
- Verð fyrir sunnan til 7. apríl (Vúhú).
- Búin að fá vinnu í sumar á A-deildinni á sjúkrahjúsinu í Keflavík sem hjúkrunarfræðinemi (Ekkert smá stolt).
- Sandra Rún systir að fara að fermast 6. apríl (Til hamingju litla systir).
- Pabbi á afmæli í dag (Til hamingju gamli minn).
- Bragi Bróðir á afmæli á mánudaginn (Til hamingju litli stóri bróðir).
- Er alltaf annað slagið að vinna upp á velli (Svona aðeins og drýgja tekjurnar).
- Fór á árshátíð HA um síðustu helgi á Akureyri, ekkert smá gaman (Þið sem ekki komust....óheppin).
- Búin með einn áfanga.......(Jey!!!).
Svo sem ekkert meira að frétta.......
Þangað til næst........
Var bara góđ stelpa.........nćstum allan tímann
Um síðustu helgi var farið í stóra vísindaferð í borg óttans.
Fimmtudagur: Laggt var af stað á hádegi á fimmtudegi í rútu. Óþarfi er að segja að stoppað var í hverri einustu sjoppu á leiðinni...... pissustopp eru nauðsynleg í svona ferðalögum
alla vega þá tók ferðin MJÖG langan tíma...... Einn staðurinn sem við stoppuðum var Hreðavatnsskáli, ég er að segja ykkur það að konan sem á þennan stað er coocoo, hún tók þá ákvörðun að rukka gjald fyrir að fara á klósettið........50 kall takk...... ég hef aldrei vitað til þess að það sé rukkað inn á klósett hér á landi, er þetta ekki brot á einhverjum lögum? Ég bara spyr. Loks komumst við til Reykjavíkur, sumir voru orðnir ansi skrautlegir.....nefni engin nöfn..... híhí. Alla vega þá voru einhverjir sem djömmuðu fram eftir nóttu og byrjuðu vísindaferðina með stæl fyrir okkur hin sem vorum róleg og fórum bara að sofa.
Föstudagur: Þá var komið að vísindaferðinni sjálfri. Einhverjir voru það þunnir að vart varð við skjálfta og ógleði en þar sem að ég var svo góð stelpa kvöldinu áður var ég bara hress
en ferðinni var heitið til að byrja með á bráðamóttökuna í Fossvogi. Þar fengum við kynningu og fengum að ganga aðeins um og skoða. Því næst heimsóttum við Vistor lyfjafyrirtækið og að lokum Janus endurhæfingu sem starfrækt er í iðnskólanum í Reykjavík. Loks var komið að því að gera sig til fyrir kvöldið. Við fórum út að borða á kaffi Viktor sem var bara fínt, góður matur og allt í boði Eirar (nemendafélag heilbrigðisdeildarinnar). Um kvöldið var svo djammað.
Laugardagur: Einhver þynnka var í fólki þennan dag þannig að það var kominn tími á þynnkumatinn......KFC klikkar ekki í þynkunni
Þar sem að þessi dagur var nokkur frír ákváðum við Markús að rölta um í kringlunni..... vá hvað ég hefði getað verslað þarna en þar sem maður er bara fátækur námsmaður var það ekki á dagskránni. Um kvöldið fórum við tvö í eitthvað vinnupartý sem vinnan hans var að halda (hitti vinnufélagana í fyrsta skiptið), góður matur, ruglaður félagskapur og frír bjór....... verður það eithvað betra en það? Eftir desertinn stungum við af upp á hótel og hittum bekkjarsystur mínar og Nonna sem kom til að djamma með okkur. Þetta kvöld djammaði ég....... myndirnar sem eru inn í myndaalbúmi hér á síðunni segir meira en þúsund orð.......... af 191 mynd setti ég bara 115 myndir sem hæfar voru til að fara inn á netið........
Sunnudagur: Þynnka, þynnka, þynnka.............. Vísindaferðinni lokið og allir á leiðinni heim......... ég ákvað að lengja aðeins ferðina og var fram á þriðjudag en flestir aðrir fóru heim á hádegi með rútu (þeir sem voru hugaðir) eða með flugi (Kjúklingarnir).
Nú er maður kominn aftur norður og berst við að byrja á Heilbrigðisfræðsluverkefninu sem við Gulla eigum að vera löngu byrjaðar á......... letin alveg að drepa mann.
Svo er ég að fara aftur suður á miðvikudaginn og fara á Brúkaup Fígarós í uppsetningu söngskólans í Reykjavík........Bragi bróðir er að syngja í uppfærslunni þannig að maður verður nú að sjá þetta.
Verknámið byrjar þann 25. feb....... kjella fer í Keflavík með Gullu og Sunnu bekkjarsystrum sínum....... bara spennt.
Annars er ekki mikið að frétta en ef eitthvað spennandi gerist þá læt ég vita ![]()
Já! Ég er á lífi!!!
Það eru nú liðnar nokkrar vikurnar síðan ég kom með síðasta pistil og margt er búið að gerast síðan þá þannig að það er held ég bara sniðugt að setja það niður í punktafærslu.
- Einkunnir komnar í hús, náði fjórum af fimm........ekki mitt besta hingað til en........
- Jólin liðin, ekkert smá næs tími.......ég vil jólafrí aftur í næstu vikui!!!
- Áramótin búin.......slysalaust hvað mig varðar
- Skólinn bryjaður aftur...... enn að ákveða hvort það sé gott eða slæmt........
- Fór í afmæli til Brynju Daggar í Kef fyrir jól....... Jógz, myndirnar eru loksins komnar í albúm á netið:)
- Djammaði á annan í jólum (smá), 28. des, á áramótunum og líka helgina eftir það....... spurning um að hringja á Vog á morgun.
- Ég held ég hafi aldrei séð svona margar myndir sem eru í bíó á sama tíma....... Það er svona að ná sér í Bíó buff........
- Fór á Selfoss í tvo daga og var með fjarnemunum í bekk, það var mjög áhugavert svo eitthvað sé sagt (híhí)
- Á meðan dvölinni á Selfossi stóð tókum við okkur til (nokkrar bekkjarsystur) og héldum "stungupartý"........ settum upp æðaleggi hjá hvor annari....... ég meina við erum að læra hjúkkuna og einhverstaðar verðum við að fá æfingu...... endaði með níu stunguför..... híhí.
- Flutti aftur norður 13. jan.
- Fór á djammið 18. jan...... vísindaferð upp á Hlíð (dvalarheimili aldraðra hér í Ak-city)...... smá húllumhæ eftir það.....(nokkrar myndir koma inn á morgun)
- Búin að vera að fylgjast með strákunum okkar í landsliðinu í handbolta...... get ekki sagt að ég sé sátt en ég stend og fell með þeim....... (dyggur stuðningsmaður).
- Lærði í dag að sprauta í vöðva...... var mynduð í bak og fyrir á meðan ég stakk nálinni í "rassinn" á einni bekkjarsystur minni...... bara fræg........ :)
Þetta er held ég allt semi merkilegt sem er búið að gerast í mínu lífi svona undanfarið.........
Ég lofa að vera duglegri framvegis að blogga :)
Kv. Brynja
Jæja, fjögur próf búin af sex....... já ég sagði sex....... maður er líka að fara yfirum yfir þessum prófalestri.
Ég sit hérna heima hjá mér á Akureyri, að krókna úr kulda, það er búið að vera bilað frost hér..... alltaf undir tíu stigum....... en alla vega þá sit ég hér og hugsa að nú er klukkan að verða þrjú og ég er ennþá vakandi....... hvað er að þeirri mynd? Nú er samt allt þetta að verða búið, næst síðasta prófið á morgun, heilsufélagsfræði, og ég er ekki vitund stressuð þó ég kunni ekkert. Svo er heilsusálfræðin á fimmtudaginn og svo jólafrí. Ég er að segja ykkur það að það verður sko hvítvín og bjór á fimmtudagskvöldið og spilað partý & co....... bara by the way, partý & co er SPILIÐ, bara snilld. Svo er það bara að fara suður á föstudaginn, vona að það verði ekki ófært því ég er með svolitla heimþrá þessa dagana![]()
Alla vega þá á ég víst að vera að fara í próf á morgun þannig að það er kannski best að fara að sofa.
Wish me luck
Erum viđ ađ tala um snjó eđa........?
Á laugardaginn ákvað ég bara að vera róleg og vera driver, keyrði um á 60 í hálkunni en það er önnur saga, alla vega þá var ég að skríða heim til mín um 5 leitið þá nóttina þegar ég keyrði fram á slys. Ég er að segja ykkur að þegar snjórinn kemur þá verður liðið í umferðinni frekar klufskt. Slysið var sem sagt einhver gaur sem ætlaði að beyja inn í Sandgerði, gerði sér örugglega ekki grein fyrir hve mikil hálka var þannig að hann lenti hálfur inni í garði hjá einhverju fólki........ Það kaldhæðnasta við þetta er að fólkið sem á garðinn var búið að endurnýja grindverkið í sumar........
Það svo hélt áfram að snjóa og snjóa á sunnudaginn og á mánudaginn......... þannig að þið getið ímyndað ykkur hvað ég var ánægð þegar ég kom svo hingað norðurá mánudaginn og það var autt og sólskyn. Ég þurfti nú ekki að bíða lengi, ég var ekki búin að vera á norðurlandinu nema í 5 tíma þegar byrjaði að snjóa........ Maður spyr sig hvort þetta hafi bara elt mann norður
Crap!
Nenni ekki ađ lćra
Já gott fólk, ástandið er ekki gott..........
Ég bara nenni ekki að læra.........
Ég veit að þetta kemur fyrir alla einhvern tímann en þarf það endilega að vera í dag þegar ég er að fara í próf á morgun sem gildir 15%!!!!!!!!!
Ég er ekki hress skal ég segja ykkur.
Ég sit hérna heima og eins og áður þá reyni ég að finna mér allar heimsins ástæður til að þurfa ekki að læra........
Dæmi:
1) Setja í þvottavél
2) Hlusta á tónlist sem ég var að downloda
3) Horfa á Oprah (sem ég geri yfirleitt ekki annars)
4) Taka úr uppþvottavélinni
5) Tala í símann (alltaf mjög skemmtilegt)
6) Elda mat
7) Moka snjó (þó það sé ekki nema 5 cm af snjó úti þá er það skárra en að læra sálfræði)
8) Smíða pallinn úti (ekki möguleiki þar sem það er snjór úti en maður má láta sér dreyma)
9) Fara í göngutúr
10) Þrífa húsið
Já, hvað af þessu er gáfulegast?????
Ný síđa
Ákvað að prófa að færa mig hingað........
Alla vega að prófa.
Það sem er svona helst í fréttum er að ég er að drukna í lærdómi........ enginn friður.
Ég sit hér heima í Sandgerði við eldhúsboðið og er að finna mér allar afsakanir í heiminum til að þurfa ekki að fara að blogga en svona er þetta.......
Skrifa meira seinna.
Brynja